Forráðamenn Lindex á Íslandi hafa ákveðið að opna nýja 400 fermetra verslun í miðbæ Selfoss næsta sumar verði deiliskipulag samþykkt. Samningur þess efnis hefur verið undirritaður af hálfu Sigtúns Þróunarfélags og forráðamanna Lindex.  Lindex er ein stærsta tískufatakeðja Norður Evrópu með um 500 verslanir í 16 löndum. Lindex býður upp á tískufatnað fyrir konur, undirföt, snyrtivörur og fylgihluti sem og fatnað á börn og unglinga á hagkvæmu verði.  Gera má ráð fyrir að um 6 til 8 ný störf skapist hjá Lindex við nýju verslunina á Selfossi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lindex.

Verslunin verður staðsett í húsum byggðum samkvæmt útliti Edinborgarhússins sem var áður í Hafnarstræti í Reykjavík og Hótel Björninn sem stóð í Hafnarfirði við hliðina á þar sem A. Hansen stendur í dag.  Verslunin mun bjóða allar þrjár meginvörulínur Lindex og verður byggð upp með nýjustu hönnun Lindex verslana sem leit fyrst dagsins ljós í London. Hönnunin byggir á björtu yfirbragði, ólíkum litbrigðum hvítra lita og svartra auk viðar sem gefur versluninni skandínavískt yfirbragð. Verslunin mun því draga saman hið gamla útlit eldri endurbyggðra húsa og hið nýja útlit verslunarinnar með hætti sem á sér hvergi hliðstæðu.

„Það er frábær tilfinning að vera loksins að koma aftur heim á Selfoss og opna hér Lindex verslun. Hugmyndin að stofnun Lindex á Íslandi má einmitt rekja til þess þegar við bjuggum hér og ég var í fæðingarorlofi með miðjubarnið okkar. Þá fann ég fyrir því hversu mikil þörf var fyrir góð barnaföt á góðu verði, síðan eru liðin rúm 8 ár og hér erum við komin aftur.  Sveitungar okkar hafa verið duglegir að koma og versla við okkur í Reykjavík en nú aukum við þjónustuna enn frekar við Sunnlendinga og færum okkur nær þeim þangað sem þetta allt byrjaði“ segir Lóa D. Kristjánsdóttir, umboðsaðili Lindex á Íslandi.

„Það er okkar meginmarkmið að miðbærinn muni  þjóna  aðallega tvíþættu hlutverki, verði  miðpunktur verslunar og viðskipta fyrir Sunnlendinga um leið og að vera áfangastaður fyrir þá fjölmörgu gesti sem leggja leið sína hingað á Selfoss.  Það að fá Lindex í lið með okkur í þessari viðleitni er frábært skref fram á við”, segir Leó Árnason, framkvæmdastjóri. Sigtúns Þróunarfélags.