Verð aðeins 7 af 18 skráðum félögum á aðalmarkaði kauphallarinnar hreyfðist í dag, og ekkert þeirra um yfir 1%. Yfir helmingur allrar veltu átti sér stað með bréf í Högum, en engin breyting varð á verði bréfanna.

Af þeim félögum sem breyting varð á voru viðskiptin mest með Reiti, sem lækkuðu um 0,3% í 41 milljónar króna viðskiptum. Þar á eftir kemur VÍS með 0,5% lækkun í 31 milljónar króna viðskiptum.