Fatarisinn Ralph Lauren hefur ráðið Patrice Louvet fyrrum framkvæmdastjóra Procter & Gamble sem forstjóra félagsins. Þetta kemur fram á vef Reuters en þrír mánuðir eru liðnir frá því að Ralph Lauren rak forstjórann sinn.

Louvet mun hefja störf 17 júlí en hann mun einnig taka sæti í stjórn fyrirtækisins. Louvet hefur talsverða reynslu en hann sá um 12 vörumerki hjá P&G. Meðal þessara vörumerkja voru Head & Shoulders, Olay og Pantene.

Stefan Larsson sem fór frá félaginu fyrir þremur mánuðum gengdi starfi sínu sem forstjóri í tæpt ár, en var látinn fara eftir deildur við stofnandann og aðra stjórnarmeðlimi.

Uppgjör fyrirtækisins er handan við hornið, en en fyrsti ársfjórðungurinn verður kynntur á fimmtudaginn.