Íslenska dúkkan Lúlla hefur slegið rækilega í gegn víðsvegar um heim frá því hún kom á markað fyrir ári síðan. Haustið 2015 voru framleiddar 5.000 dúkkur, sem seldust á þremur mánuðum. Um 30.000 dúkkur komu á markað í ágúst á þessu ári og þær eru uppseldar.
Dúkkan er hugarsmíð Eyrúnar Eggertsdóttur frumkvöðuls, sem árið 2011 stofnaði sprotafyrirtækið RóRó. Í dag á Eyrún meirihluta í fyrirtækinu en tveir sjóðir eiga einnig hluti í fyrirtækinu en það eru Eyrir Invest og S9, sem er í eigu Margrétar Ásgeirsdóttur.
„Þetta hefur gengið rosalega vel," segir Eyrún í samtali við Viðskiptablaðið. „Síðasta framleiðsla er uppseld og við erum búin að selja um 40 þúsund dúkkur í viðbót í forpöntunum og þær eru í framleiðslu núna."
Í kjölfar velgengni Lúlla dúkkunnar leitaði bandarískt stórfyrirtæki til Eyrúnar.
„Við eigum núna í viðræðum við Babies"R"Us, sem er dótturfyrirtæki Toys"R"Us. Babies"R"Us er með 224 verslanir í Bandaríkjunum og viðræðurnar eru mjög langt komnar — á lokametrunum. Svo eigum við líka í viðræðum við Babies"R"Us í Kanada."
Dúkkan kostar 71 Bandaríkjadollar eða um 8.200 krónur.
„Fólk virðist reyndar vera tilbúið að borga allt upp í 80 þúsund krónur fyrir dúkkuna. Þar sem dúkkan er uppseld hafa einhverjir verið að selja hana á Ebay og þar fór ein á þessa upphæð fyrir nokkru síðan."
- Fjallað er um alvarlegan vanda heilbrigðiskerfisins.
- Umhverfisráðherra er tekin tali um framtíðaráform í laxeldi.
- Ríkið á meirihluta bankakerfisins og mikil óvissa ríkir um framtíð bankanna.
- Rætt er við sjálfbærnissérfræðinginn Gil Friend.
- Gunnar Andri Þórisson markaðssérfræðingur sem gefur út bók á næstunni er tekinn tali.
- Markaðshlutdeild bílaumboða.
- Fjallað er um mikla uppbyggingu í Húsavík.
- Forstjóri Íslandspósts svarar fyrir sig.
- Slæm staða sauðfjárbænda er tekin ítarlega fyrir.
- Ítarlegt viðtal við Þorvald Lúðvík Sigurjónsson fjármálamann og frumkvöðul.
- Tekið er fyrir mikilvægi verkefnastjórnunar.
- Umfjöllun um tekjuhæstu leikmenn NFL.
- Félags- og tómstundastarf vetursins hefst.
- Viðtal við forsvarsmann auglýsingastofunnar Tvist.
- Pétur Pétursson, nýr sölustjóri á fyrirtækjasviði Valitor tekinn tali.
- Huginn og Muninn eru á sínum stað auk Týs, sem fjallar um loforðasúpu.
- Óðinn skrifar um valdaframsal til Seðabankans.