Hagnaður Lyfja & heilsu nam 629 milljónum í fyrra samanborið við 258 árið áður. Vó þar þyngst 295 milljóna söluhagnaður hlutabréfa, en tekjur námu 8,4 milljörðum króna og jukust um 10,5% milli ára.

Kostnaðarverð seldra vara og launakostnaður hækkuðu um svipað hlutfall og rekstrarhagnaður var því tæpum 5% hærri milli ára.

Eignir námu 5,1 milljarði og eiginfjárhlutfall 23%. Greidd laun námu 1,2 millörðum og ársverk voru 138. 400 milljónir voru greiddar í arð í fyrra, en stjórn leggur til að ekki verði greiddur arður í ár.