Í vatnssýnum sem safnað var úr vatnsveitu Veitna í Reykjavík kom í ljós að 0,2-0,4 plastagnir fundust í hverjum lítra vatns. Eru þetta mun betri niðurstöður en birtar voru í erlendri skýrslu um örplast í neysluvatni sem var í fréttum hér á landi í september segir í fréttatilkynningu frá Veitum, dótturfélagi Orkuveitu Reykjavíkur.

Þar kom fram að 83% þeirra 159 sýna sem skýrslan byggir á, og tekin voru víðs vegar í heiminum, innihéldu að meðaltali tuttugufalt og allt að 400-falt magn plastagna miðað við það sem fannst í neysluvatni Reykvíkinga.

Örplast er heiti á plastögnum sem eru minni en 5mm að þvermáli. Örplast getur annars vegar verið framleitt örplast, sem til dæmis finnst í snyrtivörum, eða örplast sem verður til við niðurbrot, t.d. úr dekkjum, innkaupapokum eða fatnaði.

Niðurstöður mælinga Veitna samsvara því að 1-2 slíkar agnir finnist í 5 lítrum vatns. Tekin voru stór sýni, eða 10-150 lítrar. Þrátt fyrir að þessar niðurstöður gefi vísbendingar um ágæta stöðu þarf að taka þeim með fyrirvara segir í fréttatilkynningu Veitna.

Fyrir því eru sagðar tvær ástæður;

Ekki er til viðurkennd sýnatöku- og greiningaraðferð þegar kemur að rannsóknum á örplasti í neysluvatni. Til að minnka skekkju sem getur orðið vegna söfnunar, meðhöndlunar og talningar á litlum sýnum var ákveðið að taka mun stærri sýni en í erlendu rannsókninni sem nefnd er að ofan. Raunar hafa höfundar hennar bent á að sýni þeirra hafi verið lítil og hafa tilkynnt að nú standi yfir framhaldsrannsóknir sem standast eðlilegar vísindalegar kröfur.

Hins vegar þá benda Veitur á að ekki sé vitað til þess að áður hafi verið skoðað hvort örplast finnist í neysluvatni hér á landi.

Því er enginn samanburður til fyrir vatn annarsstaðar á landinu. Engar reglugerðir eru til um örplast í neysluvatni, ekki eru til viðmiðunarmörk, engin krafa er um hreinsun örplasts úr neysluvatni og ekki er til heildstætt mat á magni og uppruna plasts í umhverfinu.