Tvær lögmannsstofur, Lögmenn Höfðabakka og Málflutningsstofa Reykjavíkur, hafa sameinast í eitt fyrirtæki undir heitinu Magna lögmenn. Lögmannsstofurnar tvær hafa vegna aukinna umsvifa átt samstarf um skeið í nokkrum málum með góðum árangri.

Með sameiningu verður til lögmannsstofa sem veitir alla almenna lögfræðiþjónustu og býr yfir sérþekkingu á mörgum sviðum. Má þar nefna viðskipta- og félagarétt, þjónustu við fyrirtæki á fjármála- og orkumarkaði, skipta- og sifjarétt, sem og á sviði stjórnsýslu- og sveitarstjórnarréttar.

Skrifstofur Magna lögmanna eru í endurnýjuðu húsnæði að Höfðabakka 9, Reykjavík, þar sem Lögmenn Höfðabakka hafa verið til húsa síðustu fjóra áratugi. Hjá fyrirtækinu starfa nu 13 lögmenn og lögfræðingar með mikla reynslu, bæði af störfum sínum hérlendis, í Skandinavíu og víðar í Evrópu, auk starfa fyrir fjölþjóðlegar stofnanir.

Eigendur hins sameinaða félags eru lögmennirnir:

  • Bjarki Þór Sveinsson
  • Daníel Isebarn Ágústsson
  • Einar Farestveit
  • Flóki Ásgeirsson
  • Gunnar Ingi Jóhannsson
  • Kristín Ólafsdóttir
  • Páll Rúnar Mikael Kristjánsson
  • Þórður Bogason, en hann er jafnframt framkvæmdastjóri MAGNA lögmanna.

Þórður segir sameininguna eðlilega þróun sem samrýmist stefnumótun beggja, að skapa stofu með fjölhæfa og öfluga liðsheild sem veiti bestu lögmannsþjónustu sem völ er á og sé í takt við kröfur samtímans um nútímalega lögmannsþjónustu, árangur og skilvirkni.

Lögmenn stofunnar hafa réttindi til að reka mál á öllum dómstigum. Meðal viðskiptavina stofunnar eru einstaklingar, hið opinbera og stofnanir þess sem og mörg stærstu einkafyrirtæki landsins. Að auki gætir stofan hagsmuna hér á landi fyrir heimsþekkt erlend fyrirtæki. Magna lögmenn eru í samstarfi við þekktar lögfræðistofur í Bretlandi, Bandaríkjunum og á Norðurlöndunum.