Úrvalsvísitala Kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,5% í dag og hefur hækkað um 4,77% frá áramótum. Hún stendur í 1.710,61 stigum. Heildarvísitalan hækkaði um 2,02% í dag og hefur hækkað um 12,26% frá áramótum. Heildarvelta á mörkuðum nam ríflega 3,6 milljörðum, þar af var velta á hlutabréfamarkaði milljarður og velta á skuldabréfamarkaði ríflega 2,5 milljarðar.

Titlölulega lítil velta var á hlutabréfamarkaði en tæplega helmingur af veltunni var með bréf Marel, en gengi bréfa félagsins hækkaði um 1,56% í dag í 419 milljón króna viðskiptum. Einnig var nokkur velta með bréf Símans, en gengi bréfa félagsins hækkaði um 1,23% í dag í 266 milljón króna viðskiptum.

Vísitölur GAMMA

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 0,1% í dag í 3,5 milljarða viðskiptum. Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,4% í dag í 1,1 milljarða viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,1% í dag í 2,2 milljarða viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði lítillega í 0,3 milljarða viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,3% í 1,6 milljarða viðskiptum. Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði lítillega í dag í 0,3 milljarða viðskiptum.