Hagnaður Marel á síðasta ársfjórðungi ársins 2017 nam 33,4 milljónum evra, eða sem samsvarar tæplega 4,2 milljörðum króna. Á sama tíma árið áður nam hagnaðurinn um það bil 22 milljónir evra, svo hann jókst um tæp 52% milli ára.

Ef horft er á hagnaðinn fyrir allt árið í fyrra nam hann 95 milljónum evra, eða sem samsvarar um 11,9 milljörðum íslenskra króna. Hagnaðurinn árið áður nam tæplega 73,5 milljónum evra, svo aukninginn milli ára er um 29,4%.

Minni pantanir en meiri tekjur

Á fjórða ársfjórðungi námu pantanir hjá fyrirtækinu 282 milljónum evra, sem er þó nokkru minna en pantanirnar á 3. ársfjórðungi þegar þær námu 296 milljónum og 4. ársfjórðungi ársins 2016 þegar þær námu 294 milljónum.

Tekjurnar jukust hins vegar en þær voru 295 milljónir evra á ársfjórðungnum samanborið við 247 milljónir á 3. ársfjórðungi og 250 milljónir á sama tíma árið áður. EBIT félagsins nam 46 milljónum evra, eða 15,7% af tekjum. Það er er aukning frá 38 milljónum á ársfjórðungnum á undan, eða 15,2%, og 25 milljónum ári áður, eða 14,0%.

Handbært fé frá rekstri fyrir fjármagnsliði og skatta nam 65 milljónum evra, en á sama tíma árið áður nam það 74 milljónum. Hagnaður á hlut fór úr 4,81 evru senti í 3,17 evru sent.

Ef horft er yfir allt árið jukust pantanir úr 1.013 milljónum evra árið 2016 í 1.144 milljónir evra árið 2017. Tekjurnar fóru úr 983 milljónum í 1.038 milljónir. EBIT félagsins fór úr 143 milljónum evra og 14,6% af tekjum í 157 milljónir evra og 15,2% af tekjum. Stóð pantanabók félagsins í 472 milljónum evra í lok árs 2017, en á sama tíma árið áður í 350 milljónum evra.

Nam handbært fé frá rekstri fyrir fjármagnsliði og skatta 236 milljónum evra, sem er töluverð aukning frá 179 milljónum árið 2016. Skuldahlutfallið lækkaði jfnframt, úr 2,2 faldar nettóskuldir miðað við EBITDA fyrir árið 2016 í 1,9. Það er þrátt fyrir að félagið hafi á árinu keypt eigin bréf að andvirði 63,4 milljónum evra sem og keypt fyrirtækið Sulmaq fyrir 26 milljónir evra.

Ætla að greiða út 30% arð af hagnaði ársins

Stjórn Marel leggur til að hluthafar fái greiddan arð fyrir rekstrarárið 2017 sem nemur 4,19 evru sentum á hlut sem nemur um 30% af hagnaði rekstrarársins 2017 m.v. útistandandi hluti í árslok. Jafnframt hefur stjórn Marel veitt stjórnendum félagsins heimild til að kaupa eigin bréf félagsins fyrir allt að nafnvirði 20 milljón hluta.

Frá því Marel var skráð í íslenskri kauphöll árið 1992 hefur félagið, með góðum stuðningi hluthafa, vaxið að meðaltali rúmlega 20% á ári og skapað mikil verðmæti. Á grundvelli metnaðarfullrar stefnu félagsins og áformum um framtíðarvöxt mun Marel kanna möguleika á skráningu félagsins í kauphöll erlendis. Mun félagið leita liðsinnis óháðra alþjóðlegra ráðgjafa við þá vinnu og greiningu á helstu skráningarkostum.

Með um 5.400 starfsmenn

Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel segir að fjórði árshluti hafi verið góður endir á sterku rekstrarári hjá Marel. „Pantanir hækkuðu um 13% á milli ára og námu 1.144 millljónum evra yfir árið,“ segir Árni Oddur.

„Okkar starf snýr að því að umbylta matvælaframleiðslu. Síðustu ár hefur Marel einnig tekið miklum framförum. Við höfum forgangsraðað fjárfestingum og bætt ferla til að tryggja viðskiptavinum okkar hágæða heildarlausnir á réttum tíma. Til að mæta miklum vexti í pöntunum höfum við fjölgað starfsfólki, en í dag starfa hjá Marel um 5.400 manns í yfir 30 löndum.

Samhentu starfsfólki okkar tókst að skila 295 milljónum evra í tekjur á fjórða ársfjórðungi 2017, sem er nýtt met og aukning um 18% miðað við sama tímabil í fyrra. Pantanir og tekjur hafa vaxið hraðar en rekstrarkostnaður sem skilar félaginu góðri rekstrarniðurstöðu. Heildartekjur Marel árið 2017 námu yfir einum milljarði evra og 15% í EBIT. Í ljósi góðrar rekstrarniðurstöðu og sterkrar pantanabókar, gerir félagið ráð fyrir góðum innri vexti árið 2018.

Nýsköpun og markaðssókn styður við áframhaldandi innri vöxt og verðmætasköpun. Félagið hyggst vaxa enn frekar með yfirtökum og öflugu samstarfi við leiðandi framleiðslu- og tæknifyrirtæki. Í samvinnu við viðskiptavini erum við að umbylta matvælavinnslu á heimsvísu.“