Marel hefur undirritað samning um kaup á Wenger Manufacturing LLC, sem er sagður leiðandi framleiðandi á lausnum fyrir matvælavinnslu fyrir gæludýr, plöntuprótein og fóður fyrir fiskeldi. Kaupin eruð háð hefðbundnum fyrirvörum, þar á meðal fyrirvörum um samþykki samkeppnisyfirvalda og hluthafa Wenger en áætlað er að gengið verði kaupunum á yfirstandandi ársfjórðungi, að því er kemur fram í tilkynningu Marels til Kauphallarinnar.

Heildarkaupverð er 540 milljónir dala eða um 70 milljaðrar króna en margfaldari í viðskiptunum er 14x EV/EBITDA (Heildarvirði/EBITDA) að teknu tilliti til væntra jákvæðra skattalegra áhrifa að fjárhæð 60-70 milljónir Bandaríkjadala eða sem nemur um 7,8-9,2 milljörðum króna. Kaupverðið verður greitt með reiðufé og núverandi lánalínum en Marel hefur skrifað undir 150 milljón evra brúarlán við BNP Paribas Fortis SA/NV.

Fram kemur viðræður fari fram við seljendur um greiðslu hluta kaupverðs í hlutabréfum Marel og niðurstaða mun liggja fyrir áður en uppgjör fer fram.

„Kaupin á Wenger eru mikilvægt skref inn á nýja og spennandi vaxtarmarkaði og mynda fjórðu tekjustoð félagsins, til viðbótar við alifugla-, kjöt- og fiskiðnaði,“ segir í tilkynningu Marels.

Fjórða stoð Marels

Með kaupunum á Wenger verður til nýtt tekjusvið hjá Marel sem er sagt renna fjórðu stoðinni undir viðskiptamódel félagsins til viðbótar við alifugla-, kjöt- og fiskiðnað. Á samþættum grunni (e. pro forma) telur nýja stoðin til 10% tekna og 12% af sameiginlegri EBITDA-framlegð hjá sameinuðu félagi.

„Stefna og fyrirtækjamenning félaganna tveggja falla afar vel saman, og það sama gildir um vöruframboð og landfræðilega dreifingu, sem skapar góðan grundvöll fyrir frekari vöxt.“

Wenger var stofnað árið 1935 en starfsmenn félagsins í dag eru um 500 talsins. Áætlaðar árstekjur félagsins fyrir 2022 nema 190 milljónum bandaríkjadala eða um 26 milljörðum króna, EBITDA-hagnaður er áætlaður 32-35 milljónir bandaríkjadala og EBIT-framlegð 14-15%. Starfsmenn Wenger eru yfir 500 talsins en félagið er meðal annars með starfsstöðvar í Kansas í Bandaríkjunum, Valinhos í Brasilíu og Kolding í Danmörku.

Í tilkynningu Marels segir að alþjóðlegur markaður fyrir gæludýrafóður sé metinn á yfir 100 milljarða evra og markaður fyrir fiskeldisfóður á yfir 50 milljarða evra, en árlegur vöxtur þeirra er áætlaður um 5-6%. Markaður fyrir plöntuprótein er um 7 milljarðar evra og er áætlað að hann vaxi um 15-20% árlega.

Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marels:

„Við þekkjum Wenger teymið vel, og erum full tilhlökkunar að starfa saman að frekari umbreytingum á matvæla- og fóðurmarkaði. Fyrirtækjamenning og framtíðarsýn félaganna passa vel saman. Wenger líkt og Marel leggur áherslu á stöðuga nýsköpun og að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu. Wenger er leiðandi á heimsvísu í lausnum og þjónustu til matvælavinnslu fyrir gæludýr og fyrir fóður til fiskeldis. Á síðustu árum hefur Wenger náð góðri markaðsstöðu í ört vaxandi iðnaði fyrir vinnslu plöntupróteina fyrir neytendamarkað. Wenger er staðsett í miðri framleiðslukeðjunni (e. secondary processing), sem er sambærilegt við það hvar Marel hóf göngu sína á markaði hátæknilausna til fiskvinnslu.

Kaupin á Wenger eru í samræmi við sýn okkar þar sem matvæli eru framleidd á hagkvæman og sjálfbæran hátt. Í gegnum árin, hefur Marel skref fyrir skref, útvíkkað starfsemi sína. Hér myndast fjórða stoðin í viðskiptamódeli okkar við hlið þjónustu við alifugla-, kjöt- og fiskiðnað. Á samþættum grunni (e. pro forma) telur nýja stoðin til 10% tekna og um 12% af heildar EBITDA-framlegð.

Við sjáum mikil tækifæri til vaxtar og virðisaukningar með því að virkja alþjóðlegt sölu- og þjónustunet Marel til að sinna ört vaxandi markaði fyrir plöntuprótein og fóður. Tæknilausnir og vöruframboð falla vel saman og munu hraða vegferð okkar að bjóða heildarlausnir til þjónustu á þessum nýju og spennandi vaxtarmörkuðum. Hér munu stafrænar lausnir Marel spila lykilhlutverk, auk vélbúnaðar sem passar vel framan og aftan við tæknilausnir Wenger í framleiðslukeðjunni, þ.e. við grunnstig framleiðslu og vinnslu fullbúinna vara.

Sjóðstreymi Marel er sterkt og fjárhagur traustur sem styður við áframhaldandi vöxt í samræmi við metnaðarfull markmið. Ég er sannfærður um að saman verðum við fyrirmyndarfyrirtæki, sem skapar starfsmönnum og nærumhverfi áframhaldandi vöxt og viðgang.”

Trevor Angell, stjórnarformaður Wenger:

„Wenger á sér langa sögu sem traustur samstarfsaðili á sviði hátæknilausna og nýsköpunar. Þar spila þau traustu viðskiptasambönd sem við leggjum mikla áherslu á að rækta og okkar öflugi hópur starfsmanna lykilhlutverk. Viðskiptavinir okkar á heimsvísu kalla eftir öflugum samstarfsaðilum og staðbundinni þjónustu til að tryggja að starfsemi þeirra sé sem skilvirkust. Marel hefur fjárfest ríkulega í alþjóðlegu sölu- og þjónustuneti sínu og stafrænum lausnum, sem mun styrkja stöðu Wenger sem fyrsta val viðskiptavina, auka líftíma tækjabúnaðar og þannig stuðla að bættri sjálfbærni. Starfsmenn okkar munu verða hluti af stóru og öflugu fyrirtæki á alþjóðamarkaði sem gefur þeim aukin tækifæri til að vaxa og dafna í starfi.

Okkur varð ljóst í viðræðum félaganna að mikil samlegð væri bæði í fyrirtækjamenningu sem og vöruframboði. Við byggjum á sömu gildum og framtíðarsýn, þar sem samtarf við viðskiptavini og umhyggja fyrir starfsfólki styðja vel við tækniforskot félaganna og þeirra jákvæðu áhrifa sem félögin geta haft á framleiðslu matvæla um heim allan. Það er okkur einstök ánægja að ganga til liðs við Marel og við höfum miklar væntingar um þau tækifæri sem í því felast fyrir viðskiptavini okkar og starfsmenn.”