Það sem af er degi hefur verð á hlutabréfum í Marel lækkað um 4,2% í 345 milljóna króna viðskiptum. Arion hefur lækkað næstmest eða um 1% í 300 þúsund króna viðskiptum.

Hlutabréfavísitala Aðalmarkaðarins hefur lækkað um 2,19% það sem af er degi.

Verð á hlutabréfum í Icelandair heldur áfram að hækka líkt og undanfarna daga og hefur hækkað um 1,65% í 76 milljóna króna viðskiptum það sem af er degi.