Margrét Guðmundsdóttir, varaformaður stjórnar hjá Festi, keypti í dag fyrir 10,4 milljónir króna. Nánar tiltekið keypti hún 45 þúsund hluti á genginu 232 krónur, samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar.

Samkvæmt ársreikningi samstæðunnar fór hún með 83 þúsund hluti í árslok 2021. Gera má því ráð fyrir að hún eigi um 128 þúsund hluti í Festi að markaðsvirði nærri 29 milljónum króna.

Margrét hóf stjórnarstörf hjá N1 árið 2011 og var formaður Festi til mars 2020. Hún situr einnig í stjórn Eignarhaldsfélagsins Lyngs, Eimskips, Heklu, Heklu Fasteigna og Paradísar.