Listi Framsóknarflokksins í Ísafjarðarbæ var samþykktur á félagsfundi flokksins í gær, en hann skipa 8 konur og 10 karlar en jafnt kynjahlutfall er í efstu 16 sætunum. Oddviti verður áfram Marzellíus Sveinbjörnsson umsjónarmaður fasteigna Ísafjarðarbæjar en hann hefur verið bæjarfulltrúi Framsóknar undanfarin fjögur ár og varabæjarfulltrúi þar á undan.

Í öðru sæti er Guðríður Matt Þorbjörnsdóttir leiðbeinandi og í þriðja sæti er Kristján Þór Kristjánsson svæðisstjóri CCEP. Elísabet Samúelsdóttir þjónustustjóri hjá Landsbankanum er í fjórða sætinu og Anton Helgi Guðjónsson sjávarútvegsfræðingur skipar fimmta sætið.

„Ég er gífurlega ánægður með þennan fjölbreytta og vel skipaða lista“ segir Marzellíus Sveinbjörnsson oddviti Framsóknar í Ísafjarðarbæ, oft kallaður Massi af sveitungum sínum.„Nú munum við bretta upp hendur við að móta áherslur fyrir næstu fjögur ár. Ég fer bjartsýnn inní baráttuna og vongóður um góða niðurstöðu.“

Framsókn fékk 15,56% atkvæða í síðustu kosningum og einn fulltrúa kjörin en einungis vantaði 41 atkvæði í næsta mann inn.

Hér er listi Framsóknarflokksins í Ísafjarðarbæ:

  • 1. sæti: Marzellíus Sveinbjörnsson, umsjónarmaður fasteigna Ísafjarðarbæjar. Ísafirði.
  • 2. sæti: Guðríður Matt Þorbjörnsdóttir, leiðbeinandi. Ísafirði.
  • 3. sæti: Kristján Þór Kristjánsson, svæðisstjóri CCEP á Vestfjörðum. Ísafirði.
  • 4. sæti: Elísabet Samúelsdóttir, þjónustustjóri Landsbankans á Ísafirði. Ísafirði.
  • 5. sæti: Anton Helgi Guðjónsson, sjávarútvegsfræðingur. Ísafirði.
  • 6. sæti: Helga Dóra Kristjánsdóttir, skrifstofustjóri og bóndi. Tröð í Önundarfirði.
  • 7. sæti: Hákon Ernir Hrafnsson, nemi. Ísafirði.
  • 8. sæti: Elísabet Margrét Jónasdóttir, skrifstofu og fjármálastjóri Íslandssögu. Bæ í  Súgandafirði.
  • 9. sæti: Gísli Jón Kristjánsson, útgerðarmaður. Ísafirði.
  • 10. sæti: Violetta Maria Duda, skólaliði. Suðureyri.
  • 11. sæti: Barði Önundarson, verktaki. Hafrafelli.
  • 12. sæti: Sólveig S. Guðnadóttir, sjúkraliði. Ísafirði.
  • 13. sæti: Steinþór A. Ólafsson, bóndi og verktaki. Fremri Hjarðardal í Dýrafirði.
  • 14. sæti: Rósa Ingólfsdóttir, starfsstöðvarstjóri hjá Ríkisskattstjóra. Ísafirði.
  • 15. sæti: Friðfinnur S. Sigurðsson, bifreiðastjóri. Þingeyri.
  • 16. sæti: Guðríður Sigurðardóttir, kennari. Ísafirði.
  • 17. sæti: Konráð Eggertsson, æðarbóndi. Ísafirði.
  • 18. sæti: Ásvaldur Guðmundsson, fv. staðarhaldari. Núpi í Dýrafirði.