Í samantektarriti Alþjóðaviðskiptastofnuninni WTO, World Tariff Profiles 2018, kemur fram að Ísland er eitt einungis sex aðildarríkja sam hafi alfarið afnumið tolla á iðnaðarvörur. Byggir yfirlitið, á meðaltollum aðildarríkjanna fyrir árið 2017, en í upphafi þess árs fór tollurinn á innfluttar iðnaðarvörur hingað til lands niður í 0%.

Gerði stofnunin tölfræðigreininguna upp úr gögnum sem flokkuð hafa verið i samræmi við alþjóðlegu tollskrána, en við greininguna hefur m.a. verið tekið tillit til bæði verð- og magntolla.

„Þegar að iðnaðarvörum kemur er ljóst að Ísland er afar frjálslynt ríki þar sem einfaldur meðaltalsbestukjaratollur (MEB-tollur - ensku Simple average most favoured nations applied tariff) nemur einungis 0,1%,“ segir á vef Stjórnarráðsins.

„Einungis Hong Kong, Macao og Singapúr standa Íslandi framar með 0,0% MEB-toll. Önnur ríki sem framarlega standa eru Noregur, Georgía og Máritía.“