Brottfarir Íslendinga um Leifsstöð voru í ágústmánuði 14% færri en á sama tíma fyrir ári. Þetta kemur fram í Hagsjá Landsbankans og jafnframt að þetta sé mesti samdráttur sem hefur sést á flugferðum Íslendinga í ágústmánuði síðan 2009.

Yfir sumarmánuðina voru utanlandsferðir Íslendinga samtals 10% færri en í fyrra sem er mesti árlegi samdráttur yfir sumarmánuði síðan 2009

„Ferðamálastofa gerði könnun í upphafi árs þar sem landsmenn voru spurðir um ferðaáform ársins. Þá töldu 53% Íslendinga líkur á borgarferð erlendis á árinu og 44% hugðust fara í sólarlandaferð. Marktækt fleiri sögðust ætla í sólarlandaferð í ár en á árunum 2011-2018. Það má fastlega gera ráð fyrir að þau áform hafi breyst í kjölfar gjaldþrots WOW air. Einnig spilar inn í að sumarið á suðvesturhorni landsins var einstaklega sólríkt og gott og því kannski minni þörf á sólarlandaferð en ella,“ segir í Hagsjá Landsbankans.