Mikil umframeftirspurn var eftir skuldabréfum Haga í lokuðu útboði sem lauk í gær. Um er að ræða bréf í nýjum verðtryggðum flokki, HAGA 021029, sem óskað er eftir að verði tekin til viðskipta á á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland innan 6 mánaða að því er fram kemur í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Alls bárust tilboð upp á 12,16 milljarða króna en ákveðið var að taka tilboðum sem jafngiltu hámarksstærð útboðsins að nafnvirði 5,5 milljarða króna á genginu 1. Bréfin sem verða einu skráðu skuldabréf skráðs rekstrarfélags í Kauphöllinni bera fasta 2,8% verðtryggða vexti til 10 ára með jöfnum afborgunum á 3 mánaða fresti. Bréfin bera því um 215 punkta álag ofan á ríkisskuldabréf til álíka langstíma. Skuldabréfaflokkurinn er tryggður með veði í lykilfasteignum Haga.

Skuldabréfaflokkurinn er stækkanlegur í allt að 15 milljarða króna en gjalddagi áskrifta og afhending bréfa er á morgun, 2. október. Þá voru einnig boðin til sölu skuldabréf í nýjum óverðtryggðum flokki HAGA 021022, en engum tilboðum var tekið í þann flokk. Það var Arctica Finance sem hafði umsjón með útboðinu fyrir hönd Haga.