Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,36% í dag og endaði í 1.783,10 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 5,17% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa N1, eða um 1,73% í viðskiptum sem hljóða upp á 483 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins nemur 70,50 krónum á hlut. Gengi bréfa Haga hækkaði þá einnig, eða um 0,21% í 732 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf nemur þá 47,8 krónum.

Mest lækkaði gengi bréfa VÍS, eða um 0,52 í viðskiptum sem hljóða upp á 178 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 7,68 krónur. Gengi bréfa HB Granda lækkaði þá einnig um 0,17%, en velta með bréfin var 89 milljónir króna. Hvert bréf kostar þá 29,55 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmlega 2,4 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var rúmlega 3,3 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,3% í dag í 2,4 ma. viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,1% í dag í 3 ma. viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,1% í 0,1 ma. viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,1% í 2,9 ma. viðskiptum.