Gildistaka nýrrar heimildar um vinnustaðasóttkví sem taka átti gildi á hádegi í dag frestast. Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn almannavarna, staðfestir þetta við mbl.is. Seinkunin sé tilkomin vegna mistaka hans við undirbúning verkefnisins.
„Ég gerði bara mistök í því að fá ekki fulltrúa ASÍ við borðið og þess vegna funduðum við með þeim í morgun og fengum frá þeim góð og haldbær rök," hefur mbl.is eftir Víði og baðst hann afsökunar á mistökunum.
Sjá einnig: Heimild um vinnustaðasóttkví
Fundað verði með aðilum vinnumarkaðarins í dag og á morgun og vonast Víðir til þess að málið leysist fljótt og örugglega.