Mjaldrarnir Little Grey og Little White koma til Íslands í fyrramálið og verður þeim komið fyrir í sjókví í Vestmannaeyjum. Mjaldrarnir verða fluttir með flugvél Cargolux frá Shanghæ í Kína til Íslands og er áætluð lending í Keflavík klukkan 10.30 á morgun. Þeim verður ekið í sérútbúnum vögnum frá Keflavík að Landeyjarhöfn þaðan sem þeim verður siglt til Vestmannaeyja. Það er Sealife Trust sem stendur fyrir verkefninu en mjaldarnir eru fluttir frá Changfeng Ocean World sædýragarðinum í Shanghai. TVG-Zimsen mun sjá um flutning á mjöldrunum þegar til Íslands er komið.

,,Mjaldarnir verða fluttir í sérútbúnum tönkum sem þeir eru settir í í dýragarðinum í Shanghæ. Mjaldrarnir eru síðan fluttir í tönkunum úr flugvélinni og þaðan í sérútbúna í vagna á Keflavíkurflugvelli sem munu flytja þá til Landeyjarhafnar. Hvor mjaldur fyrir sig er um eitt tonn að þyngd. Heildarþyngd á hvorum tank er um 9 tonn. Þjálfarar mjaldranna geta verið í talstöðvarsambandi við þá í vögnunum. Það er sérstakt talstöðvar- og myndavélarkerfi í tönkunum og þjálfararnir sitja frammí trykkunum hjá bílstjórununum og fylgjast vel með mjöldrunum. Þetta verður krefjandi en mjög skemmtilegt verkefni. Við ökum Suðurstrandarveginn. Við erum með fjögur öryggisstopp á leiðinni þar sem verður stoppað og farið inn og kíkt á mjaldranna. Fyrsta stopp er í Grindavík, annað stopp á Selfossi og við erum síðan með tvo aðra staði sem verður stoppað á ef á þarf að halda á leið til Landeyjarhafnar," segir Sigurjón Ingi Sigurðsson, hjá sérverkefnadeild TVG-Zimsen.

Mjaldrarnir áttu upphaflega að koma í apríl sl en för þeirra var frestað vegna veðurs og Landeyjarhöfn lokuð. Nú er hins vegar allt klárt fyrir komu þeirra.
,,Undirbúningurinn hefur langur og stangur og staðið yfir í hálft ár.„Það er mjög spennandi að fá að taka þátt í þessu verkefni sem mun án efa vekja mikla athygli um allan heim,“ segir Sigurjón ennfremur.