MP hefur selt hluta af bréfum sínum í fjarskiptafyrirtækinu Vodafone. Þetta kemur fram í flöggunar-tilkynningu sem kom frá kauphöllinni nú í dag, en viðskiptin eru dagsett í gær.

MP Banki á ennþá eftir söluna 4,36% hlut í Vodafone en átti fyrir 5,83%.

Líklegt er að á bakvið söluna séu breytingar á veltubók bankans.