MP Straumur fær nýtt nafn frá og með næsta mánudegi og mun bera nafniðn Kvika. Í tilkynningu frá bankanum segir að nafnið eigi að vísa í óbeislaða orku íslenskrar náttúru; jarðkvikuna sem iðar og hrærist, umbreytir og skapar spennu.

Samhliða þessari breytingu mun Kvika taka upp nýtt merki. Merkið sýnir stuðlaberg eða stöplaröð þar sem tveir flekar mætast og hreyfast eins og heimsálfuflekarnir á Íslandi. Þá á merkið einnig að minna á línurit. Nýja nafnið og merkið var kynnt starfsfólki bankans í Hörpu klukkan 18 í dag. Nafnabreytingin mun taka gildi í kjölfar hluthafafundar á mánudagsmorgun. Í kjölfar fundarins verður vefsíðu bankans og heimabankans breytt.

Í tilkynningunni segir jafnframt að Kvika ætli að veita öðrum íslenskum fjármálastofnunum harða samkeppni á þeim sviðum sem sérhæfing bankans liggur. Kvika sé umbreytingabanki sem sérhæfi sig í alhliða þjónustu við sparifjár- og innlánseigendur á sviði eignastýringar. Þá muni bankinn veita sérhæfða fjármálaþjónustu með áherslu á umbreytingaverkefni.

Í tilkynningunni er haft eftir Sigurði Atla Jónssyni, forstjóra bankans, að með nafnabreytingunni sé verð að stíga síðasta formlega skrefið í sameiningu fjármálafyrirtækjanna tveggja. Að vissu leyti sé þetta nýtt upphaf fyrir bankann, sem þó byggi áfram á þeim grunni sem lagður hafi verið í Straumi fjárfestingabanka og MP banka.

Nýtt merki Kviku: