Fjármálaþing Íslandsbanka var haldið í dag þar sem ný þjóðhagsspá Greiningar Íslandsbanka var kynnt.

Á þinginu var jafnframt lögð áhersla á smásölumarkaðinn en sérstakur gestur var Steve Pappas, Senior Vice President hjá Costo í Evrópu sem fór yfir samkeppnina í víðara samhengi.

Að lokum var rætt um íslenska verslun og breytingar á smásölumarkaði í pallborði en þátttakendur voru: Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita, Jón Ólafur Halldórsson, forstjóri Olís, Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir, eigandi Lindex á Íslandi, Margrét Kristmannsdóttir, framkvæmdastjóri Pfaff, og Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI.

© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)

© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)

© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)

© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)

© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)

© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)