Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins ásamt Lögmannafélagi Íslands buðu til útgáfufundar á þriðjudagsmorgun vegna útgáfu á leiðbeiningum í samkeppnisrétti.
Fengu leiðbeiningarnar heitið Hollráð um heilbrigða samkeppni – Leiðbeiningar til fyrirtækja.
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ráðherra opnaði fundinn en erindi fluttu Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, Ari Edwald, forstjóri Mjólkursamsölunnar, Bergþóra Halldórsdóttir, lögmaður hjá Samtökum atvinnulífsins, og Helga Melkorka Óttarsdóttir, meðeigandi og framkvæmdastjóri LOGOS.
Framsögumennirnir Ari Edwald, forstjóri Mjólkursamsölunnar, og Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, ræddust við, en í erindi sínu var Ari harðorður í gagnrýni sinni á eftirlitið.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, hrósaði sérstaklega útgefendum hollráðanna fyrir frumkvæðið í því að setja samkeppnisrétt á oddinn með leiðbeiningum til fyrirtækja.
Ari Edwald, forstjóri Mjólkursamsölunnar, var einn framsögumanna.
Hreggviður Jónsson, fyrrverandi formaður Viðskiptaráðs og Pétur Þór Halldósson forstjóri S4S voru meðal þeirra sem kynntu sér útgáfu ráðsins, SA og Lögmannafélagsins um hollráð til fyrirtækja.
Marta Guðrún Blöndal, sem starfað hefur við undirbúning hollráðanna sem lögfræðingur Viðskiptaráðs Íslands, hefur nýlega verið ráðin til starfa hjá ORF Líftækni en hún ræddi um nýja starfið nýlega við VIðskiptablaðið .
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ráðherra ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, opnaði fundinn.
Heimir Örn Herbertsson, sérfræðingur við lagadeild HR og formaður starfshóp um leiðbeiningar í samkeppnisrétti kynnti leiðarljós starfshópsins fyrir fundargestum.
Bergþóra Halldórsdóttir, lögmaður hjá Samtökum atvinnulífsins, var meðal þeirra sem tóku til máls á fundinum.
Katrín Olga Jóhannsdóttir, formaður Viðskiptaráðs, ræddi við Helgu Melkorku Óttarsdóttur, meðeiganda og framkvæmdastjóra lögmannstofunnar Logos, sem flutti eitt erindanna á fundinum.