Í dag mun N1 hefja sölu á eldsneyti á föstu lágu verði á þremur N1 stöðvum til viðbótar við N1 Lindum, þar á meðal á Akureyri, viku eftir að Atlantsolía hóf sölu á eldsneyti þar á afsláttarverði. N1 festi lágt verð í sessi í Lindum við opnun þann 18. desember síðastliðinn, og segir félagið fyrirkomulagið í Lindum hafa slegið í gegn.

Atlantsolía boðaði 1. maí 2018 að það hygðist verða samkeppnishæft við bensínsölu Costco með því að bjóða fast lágt verð í Kaplakrika , næstu stöð sína við Kauptún, en færði svo út kvíarnar í sumar með því að bjóða sama verð á Sprengisandi. Eins og Viðskiptablaðið sagði frá því í lok september ákvað svo Atlantsolía að hefja sölu á bensíni á sama verði á Akureyri og virðist N1 nú vera að bregðast við því skrefi.

Þannig er verðið sem N1 býður á útsölustöðum fjórum nú 187 krónur fyrir bensínlítrann og 183 krónur fyrir lítrann af dísel. Samkvæmt verðyfirliti á síðunni GSM bensín eru samsvarandi verð á N1 stöðvum í höfuðborginni 224,90 og 212,40 krónur. Samkvæmt því þegar þetta er skrifað er verðið ódýrara á völdum stöðum Orkunnar, Atlantsolíu og ÓB.

„Þetta fyrirkomulag hefur mælst afar vel fyrir hjá viðskiptavinum okkar og raunar farið fram úr björtustu vonum okkar. Fasta lága verðið flýgur hátt og því viljum við koma enn frekar til móts við viðskiptavini okkar með því að bæta þremur N1 stöðvum við frá og með deginum í dag,“ segir Hinrik Örn Bjarnason, framkvæmdastjóri N1.

N1 Reykjavíkurvegi, N1 Norðurhellu og N1 Tryggvabraut á Akureyri bætast því í hópinn í dag. N1 Norðurhellu er ný stöð og eykur enn þjónustu við bifreiðaeigendur sem þarna fara um. Sem fyrr verður hægt að greiða með N1 korti og N1 lyklum á þessum stöðvum.

„Við leitum ætíð allra leiða til að hlusta á viðskiptavini okkar og fast lágt verð er augljóslega eitthvað sem fellur bifreiðaeigendum vel í geð. Stöðvarnar tvær í Hafnarfirði og ekki síður á Tryggvabrautinni á Akureyri henta vel fyrir þessa útfærslu og við hlökkum til að geta boðið viðskiptavinum okkar upp á þetta nýja fyrirkomulag,“ segir Hinrik Örn.