Farið var fram á nauðungarsölu á skipinu Arctic Circle EA á Akureyrarskrifstofu sýslumannsembættisins á Norðurlandi í gær vegna tæplega 119 milljóna króna skuldar. Gerðarbeiðandi er Íslandsbanki en gerðarþoli er félagið Ambassador ehf., sem rak rak hvalaskoðunarfyrirtæki á Akureyri fram til ársins 2018. Akureyri Whale Watching ehf. keypti skipin Ambassador og Diplómat II af Ambassador ehf. í maí 2018 ásamt léni Ambassador.

Samkvæmt skipaskrá er Arctic Circle EA 27 metra, og 226 brúttótonna farþegaskip smíðað 1991.