Nettó-mót Golfklúbbs Kópavogs- og Garðabæjar hófst í gær. Nettó-mótið er hluti af unglingamótaröðinni í golfi en nýlega undirrituðu GKG og Nettó samning þar sem Nettó verður einn af aðalstyrktaraðilum barna- og unglingastarfs GKG. Samningurinn er tvíþættur, annars vegar styrkir Nettó barna- og unglingastarf GKG með beinum hætti, hins vegar er Nettó aðalstyrktaraðili árlegra barna- og unglingamóta sem GKG heldur. Um er að ræða Nettó-mót unglingamótaraðar GSÍ og Nettó-mót áskorendamótaraðar GSÍ.

Agnar Már Jónsson, framkvæmdastjóri GKG, segir að allt frá stofnun klúbbsins hafi verið lögð mikil áhersla á barna- og unglingastarf. Slík nálgun er forsenda þess að fjölga iðkendum í íþróttinni og hafi leitt af sér að rúmlega 700 börn og unglingar eru virkir iðkendur í klúbbnum á hverju ári.

„Þessi fjöldi barna og unglinga vekur verulega eftirtekt í Evrópu en sem dæmi má nefna eru um 180 börn og unglingar í stærsta golfklúbbi Danmerkur. Það væri óvinnandi vegur að vinna jafn metnaðarfullt starf án aðstoðar frá fyrirtækjum og sveitarfélögum“ segir Agnar Már. „Með þessum samningi er Nettó að styðja þétt við bakið á okkur í þeim málum og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Nú höfum við tök á að halda glæsileg barna- og unglingamót með sambærilegri umgjörð og á mótaröð þeirra bestu ásamt því að auka þá þjónustu sem við veitum börnum og unglingum í GKG“.

„Samkaup styðja margþætt æskulýðs- og forvarnarstarf á landsvísu sem stuðlar að heilbrigðum lífsstíl. Þessir þættir endurspeglast í starfi GKG,“ segir Ingibjörg Ásta Halldórsdóttr, markaðsstjóri Samkaupa.

„Það hefur marga jákvæða kosti að iðka golfíþróttina sem barn. Í fyrsta lagi er það forvarnargildið en það er margsannað að þau börn- og unglingar sem iðka íþróttir leiðast síður út í óreglu. Í öðru lagi þá er uppeldisgildi golfíþróttarinnar með öðrum hætti en tíðkast í flestum öðrum íþróttum. Krökkum er kennt að bera virðingu fyrir hvert öðru innan vallar sem utan, hafa heiðarleika og kurteisi að leiðarljósi og sýna náttúrunni auðmýkt. Í þriðja lagi þá er það ómetanlegt tækifæri fyrir einstakling að læra golfsveifluna á unga aldri. Golfíþróttina er hægt að stunda fram eftir öllum aldri og þeir aðilar sem ná ungir tökum á sveiflunni munu njóta þess út ævina,“ segir Ingibjörg Ásta.