VÍS hefur tilkynnt um nýtt skipurit í kjölfar skipulagsbreytingar hjá vátryggingafélaginu. Í tilkynningu VÍS til Kauphallarinnar kemur fram að Hafdís Hansdóttir, framkvæmdastjóri þjónustu, hafi ákveðið að láta af störfum. Nánar segir að níu starfsmenn láti af störfum samhliða umræddum skipulagsbreytingum sem taka gildi þegar í stað.

Breytingarnar fela í sér að þjónusta, sala og markaðsmál verða sameinuð undir nýju sviði sem nefnist sala og þjónusta. Framkvæmdastjóri sviðsins verður Guðný Helga Herbertsdóttir. Þá færast stafrænar lausnir yfir til kjarnastarfsemi sem framvegis nefnist kjarni og stafrænar lausnir sem Birkir Jóhannesson mun stýra.

„VÍS er stafrænt þjónustufyrirtæki sem breytir því hvernig tryggingar virka,“ segir í tilkynningunni. „VÍS hefur skipað sér í fremstu röð tryggingafélaga á Íslandi, með þróun sjálfvirkra þjónustuferla og stafrænna lausna. Áherslan fram á veg verður á sókn og sölu.“

Framkvæmdastjórn félagsins skipa nú Helgi Bjarnason, Guðný Helga Herbertsdóttir, Birkir Jóhannsson og Anna Rós Ívarsdóttir mannauðsstjóri.

Helgi Bjarnason, forstjóri VÍS:

„Að umbreyta aldargömlu tryggingafélagi í stafrænt þjónustufyrirtæki kallar á sífelldar breytingar, ekki síst á skipulagi félagsins. Vegferðin og markmiðin eru skýr. Ég vil þakka Hafdísi fyrir frábært samstarf og ómetanlegt framlag til félagsins undanfarin ár.“