Níu teymi taka þátt í nýsköpunarhraðlinum Hringiða, sem ætlað er að efla og styðja nýja tækni og aðferðir til að leysa aðsteðjandi úrlausnarefni í umhverfismálum. Markmiðið er að þátttakendur verði í lok hraðals í stakk búin til að kynna verkefni sín fyrir fjárfestum og sækja styrki í Evrópusjóði sem styðja verkefni sem draga úr losun.

Þátttakendur fá aðgang að fræðslu og þjálfun frá innlendum og erlendum sérfræðingum á sviði samfélagsmála og nýsköpunar og fundi með fjölda leiðbeinenda úr atvinnulífinu. Að verkefninu standa Reykjavíkurborg, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Orkuveita Reykjavíkur, Hvalfjarðarsveit, Faxaflóahafnir, Sorpa og Terra auk Þróunarfélags Grundartanga og Breið Þróunarfélags.

Teymin sem taka þátt árið 2021 eru:

  • Ánaburður

Framleiðsla á hágæða lífrænt vottuðum áburði úr lífrænum úrgangi. Fyrirtækið mun nýta svokallaða vermicompostin aðferð við framleiðsluna en hún felst í því að ánamaðkar eru fóðraðir á lífrænum úrgangi sem þeir svo skila frá sér sem áburði.

  • Hemp Pack

Hemp Pack er ungt líftækni fyrirtæki í þróun á lífplasti úr lífmassa og kaldræktuðum örverum. Fyrirtækið nýtir afföll matvælaiðnaðar og landbúnaðarframleiðslu ásamt endurnýjanlegri orku til þess að framleiða sannarlega sjálfbæran staðgengil plasts fyrir alþjóðlegan markað.

  • IceWind

IceWind hannar og smíðar litlar lóðréttsás vindtúrbínur ætlaðar fyrir öfgafullt veðurfar á norðurslóðum. Rekstraraðilar lítilla orkukerfa úr alfaraleið hafa oftar en ekki engan aðgang að rafmagni og þurfa því að framleiða sína eigin orku. Sólarorka er mjög takmörkuð á norðurslóðum og því þarf að notast við aðrar aðferðir við orkuöflun svo sem vindorku.

  • Íslenska glerið

Endurvinnsla á steinull í nýtt hráefni. Íslenska glerið er samstarfsverkefni Fléttu, hönnunarstofu og Kristínar Sigurðardóttur vöruhönnuðar þar sem steinull er endurnýtt í nýtt glerjað efni fyrir bygginariðnað.

  • M Bío Box

Þróa íslenska útfærslu af náttúrulega niðurbrjótanlegum umbúðum til að leysa af hólmi óvistvænar umbúðir nýttar fyrir fiskútflutning í dag.

  • On to something

Vettvangur sem tengir saman ólíka aðila og mótar skapandi farvegi fyrir hreina strauma fráfallsefna með verðmætasköpun og sjálfbærni að leiðarljósi.

  • Surova

Sjálfvirk grænmetisræktun inni í stöðluðum gámaeiningum staðsettum í nánd við verslanir. Surova vinnur að lágmörkun auðlinda við framleiðslu grænmetis með þróun sjálfvirkra lausna til að hámarka afköst og hagkvæmni hverrar uppskeru.

  • Vestro

Vestro þróar nýjar vörur úr 100% endurunnu plasti og skapa í leiðinni hringrás.  Markmiðið er að skipta út hefðbundnu plasti fyrir 100% endurunnið plast í framleiðslufyrirtækjum, öllum iðnaði, flutningafyrirtækjum, heimilum, sjávarútvegi og landbúnaði.

  • XYZ Prent

Fyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðsluferlum sem byggist á stórum þrívíddarprentunum með endurunnum Íslenskum plastúrgangi. Með að bjóða upp á þrívíddarprentun í stórum stærðum þá styðjum við sjálfbæra framleiðslu og þróunarvinnu í íslenskri hönnun og iðnaði, jafnframt, með notkun á plastúrgangi, sem annars yrði sendur úr landi, þá höldum við tækifærisskapandi afurðum innanlands.