Veitingastaðurinn Noodle Station hefur opnað í Kringlunni á Stjörnutorgi. Þar er boðið upp á hina frægu núðlusúpu. Hægt er að velja á milli kjúklings, nautakjöts eða grænmetis. Þetta staðfestir Charin Thaiprasert, sem rekur Noodle Station, í samtali við Viðskiptablaðið.

Nú rekur því Noodle Station starfsstöðvar á Laugavegi 103, Bæjarhrauni 4 í Hafnarfirði og nú í Kringlunni.

Eins og nýverið var greint frá þá undirbýr Noodle Station nú í Seúl í Suður-Kóreu í lok sumars. Upphafið af þeirri hugmynd kviknaði eftir að ánægður viðskiptavinur skildi eftir skilaboð til eigenda veitingastaðarins.