Á fyrstu sjö mánuðum þessa árs voru 14% allra íbúðaviðskipta á almennum markaði hér á landi vegna nýbygginga en árið 2010 var hlutfallið 3%. Þegar síðasta uppsveifla náði hámarki árið 2007 var hlutfallið 18%. Í Mosfellsbæ voru um 56% allra íbúðaviðskipta vegna nýbygginga á fyrri helmingi ársins og í Garðabæ var þetta hlutfall 45%. Í Reykjavík voru 6% allra íbúðaviðskipta vegna nýbygginga. Þetta kemur fram í nýrri greiningu hagdeildar Íbúðalánasjóðs á markaðnum með nýjar íbúðir. Íbúðalánasjóður greinir frá þessu í fréttatilkynningu.

Nýbyggðar íbúðir eru minni en aðrar íbúðir

Nýbyggðar íbúðir eru að jafnaði minni, og með færri herbergjum, en aðrar íbúðir á markaðnum. Einna minnstar eru nýju íbúðirnar á Akureyri, en þær nýbyggðu íbúðir sem seldust þar á fyrstu sjö mánuðum ársins voru um 82 fermetrar að stærð eða 38 fermetrum minni en aðrar seldar íbúðir í bænum. Í Reykjavík voru nýjar íbúðir að meðaltali 89 fermetrar á sama tímabili sem er 20 fermetrum minna en aðrar íbúðir.

Nýjar íbúðir í Reykjavík 32% dýrari á hvern fermetra

Söluverð nýrra íbúða í Reykjavík á fyrstu sjö mánuðum ársins var að meðaltali 51 milljón króna en verð annarra íbúða var að meðaltali 46 milljónir. Á öðrum ársfjórðungi var fermetraverð í kaupsamningum vegna nýbygginga í Reykjavík að meðaltali um 586 þúsund krónur en í öðrum íbúðum í borginni var fermetraverðið að meðaltali um 445 þúsund krónur. Nýbyggingar í Reykjavík voru því að meðaltali um 32% dýrari á hvern fermetra en aðrar íbúðir.

Sérstakur skortur á ódýrum íbúðum

Að mati hagdeildar Íbúðalánasjóðs bendir margt til þess að sérstakur skortur sé á minni og hagkvæmum íbúðum á verði sem almenningur ræður við. Minni íbúðir í nýbyggingum eru skemur í sölu og líklegri til að seljast á eða yfir ásettu verði en stærri íbúðir í nýbyggingum. Þrátt fyrir þessa eftirspurn eftir litlum íbúðum er ljóst að fáar af þeim nýbyggingum sem komið hafa á markaðinn að undanförnu henta þeim sem hafa lítið eigið fé til íbúðakaupa. Aðeins 5% nýbygginga á landsvísu hafa verið auglýst á undir 30 milljónum króna það sem af er ári og aðeins 2% þeirra hafa verið auglýst á undir 25 milljónum.