Reynir B. Eiríksson hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra Ferro Zink hf.

Fráfarandi framkvæmdastjóri, Helgi Gústafsson mun taka að sér sérverkefni innan fyrirtækisins.

Reynir er 53 ára vélaverkfræðingur og hefur áður starfað sem framleiðslustjóri hjá Norðlenska og Skinnaiðnaði, og sem framkvæmdastjóri Mekka tölvulausna.  Nú síðast var Reynir vörustjóri Innova MES hugbúnaðar hjá Marel.

Í tilkynningu um ráðninguna segir að breytingarnar séu í tengslum við stefnumótunarvinnu stjórnar félagsins til að fylgja eftir þeim verkefnum sem stjórnin ákveður að ráðist verði í á komandi mánuðum til að efla og þróa rekstur félagsins.