Marteinn Jónsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Veltis – Volvo atvinnutækjasviðs Brimborgar. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu. Marteinn er viðskiptafræðingur frá Viðskiptaháskólanum á Bifröst og hefur lengst af starfað hjá Kaupfélagi Skagfirðinga á Sauðárkróki sem framkvæmdastjóri verslunar- og þjónustusviðs. Marteinn býr að langri reynslu í stjórnun og mikilli reynslu af rekstri öflugs þjónustuverkstæðis en undir hann heyrði véla-, bíla og rafmagnsverkstæði Kaupfélagsins á Sauðárkróki fyrir fólksbíla og önnur atvinnutæki. Marteinn er kvæntur Bertínu Guðrúnu Rodriquez, fjármálasérfræðingi hjá Reykjavíkurborg.

Veltir – Volvo atvinnutækjasvið Brimborgar er eitt af sex viðskiptasviðum hjá Brimborg. Veltir er sölu- og þjónustuumboð fyrir Volvo vörubíla, Volvo vinnuvélar, Volvo rútur og Volvo Penta bátavélar ásamt Hiab hleðslukrönum fyrir vörubíla.

„Við erum mjög ánægð með að fá Martein til að taka við og leiða Veltisteymið inn í spennandi tíma en framundan er mikill uppgangur í innviðauppbyggingu á Íslandi. Veltir mun leika þar stórt hlutverk með sterk vörumerki, reynslumikla fagmenn og einstaka aðstöðu til að veita framúrskarandi þjónustu,“ segir Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborga í tilkynningunni.

„Ég er mjög spenntur fyrir að hefja störf hjá Velti og sé gríðarlega möguleika með þeim framúrskarandi sérfræðingum sem þar starfa í frábærri aðstöðu á Hádegismóum með öflug vörumerki“ segir Marteinn.