Laugardaginn 15. júní nk., mun samgönguráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson afhenda Vestmannaeyingum nýja ferju fyrir samgöngur milli lands og Eyja. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu. Af því tilefni verður efnt til formlegrar móttökuathafnar í Friðarhöfninni í Vestmannaeyjum.

Athöfnin hefst kl. 14:15 með ræðum samgönguráðherra, forstjóra Vegagerðarinnar, formanni bæjarráðs og fulltrúa Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs. Prestur Landakirkju mun blessa skipið og forsætisráðherra Katrín Jakobsdóttir formlega nefna það.

„Í framhaldi verður skipið bæjarbúum og öðrum gestum til sýnis. Boðið verður upp á veitingar, skemmtiatriði o.fl. milli kl. 14:30 og 16:00. Sunnudaginn 16. júní verður skipið jafnframt til sýnis frá 16:00 til 18:00. Bæjarbúar og aðir gestir eru hvattir til að koma niður á bryggju, gera sér glaðan dag og njóta tímamótanna."