Rúmlega ár er liðið frá því Hugverkaráð Samtaka iðnaðarins var sett á laggirnar og hefur nú nýtt ráð verið skipað. Hlutverk ráðsins er að styrkja þau málefni sem eru sameiginleg fyrirtækjum sem starfa á alþjóðamörkuðum og byggja afurðir sínar og þjónustu á tækni og hugverki. Enn fremur á ráðið að efla samkeppnishæfni hugverka- og tæknifyrirtækja á Íslandi með því að vera leiðandi afl í hagsmuna- og stefnumálum þeirra. Í ráðinu sitja fulltrúar sjö starfsgreinahópa sem tilheyra hugverkasviði Samtaka iðnaðarins að því er kemur fram í fréttatilkynningu frá SI.

Í ráðinu eru Ragnheiður H. Magnúsdóttir hjá Marel og Kristinn Árni Lár Hróbjartsson hjá Kolibri frá Samtökum upplýsingatæknifyrirtækja, Pétur Már Halldórsson hjá Nox Medical og Svana Helen Björnsdóttir hjá Stika frá Samtökum heilbrigðisiðnaðarins, Frosti Ólafsson hjá ORF Líftækni og María Bragadóttir hjá Alvogen frá Samtökum íslenskra líftæknifyrirtækja, Jóhann Þór Jónsson hjá Advania og Valgerður Hrund Skúladóttir hjá Sensa frá Samtökum gagnavera, Íris Ólafsdóttir hjá Kúla 3D og Erlendur Steinn Guðnason hjá Vizido frá Samtökum sprotafyrirtækja, Hilmar Veigar Pétursson og Stefanía G. Halldórsdóttir hjá CCP frá Samtökum leikjaframleiðenda og Kristinn Þórðarson og Helga Margrét Reykdal hjá Truenorth frá Sambandi íslenskra kvikmyndaframleiðenda.