Unnur Sverrisdóttir forstjóri Vinnumálastofunar og Ægir Már Þórisson forstjóri Advania undirrituðu rammasamning um samstarfið í gær. Þetta kemur framí tilkynningu frá Advania.

Í honum felst að Vinnumálastofnun heldur áfram nánu samstarfi við Advania meðal annars um hugbúnaðaþróun, vefsmíði, viðskiptagreind og hýsingu lausna. Fyrirtækið kemur að innri og ytri vefjum stofnunarinnar, hýsir og rekur upplýsingakerfi og ýmis sértæk kerfi svo sem fyrir Fæðingarorlofssjóð og Ábyrgðasjóð launa.

„Það er gaman að sjá gott samstarf leiða til hagræðingar og skilvirkni hjá Vinnumálastofnun. Þar hefur upplýsingatæknin leyst af hólmi handvirka og tímafreka ferla og stutt stofnunina í að veita betri þjónustu,“ segir Sigrún Ámundadóttir, framkvæmdastjóri hugbúnaðarlausna Advania.

„Vinnumálastofnun hefur lagt síaukna áherslu á stafræna þjónustu og er traust samstarf við upplýsingatæknifyrirtæki, grunnur að góðri afurð. Að gera ferlana stafræna styður við gildi Vinnumálastofnunar sem eru; fyrirmyndarþjónusta, virðing og áreiðanleiki,“ segir Margrét Kr. Gunnarsdóttir sviðsstjóri hjá Vinnumálastofnun.

Advania hefur unnið með Vinnumálastofnun að stafrænni umbreytingu undanfarin ár. Í fyrra varð fyrirtækið hlutskarpast í útboði Ríkiskaupa um smíði á nýju grunnkerfi um stóran hluta þjónustu Vinnumálastofnunnar. Kerfið er hannað með það að leiðarljósi að spara atvinnulausum sporin, flýta afgreiðslu atvinnuleysisbóta og draga úr tímafrekri pappírsvinnu starfsfólks.