Í tilkynningu frá Ólafi Ólafssyni í kjölfar dóms Mannréttindadómstóls Evrópu segir að niðurstaðan sýni að brotið hafi verið gegn mannréttindum hans við meðferð Al-Thani málsins.

Eins og Viðskiptablaðið hefur fjallað um í morgun segir í dómnum að Árni Kolbeinsson hafi verið vanhæfur til að dæma í málinu og ekki hafi verið fallist á frávísun málsins þó bæði sakborningar og verjendur hafi líklega vitað af tengslunum .

Er það niðurstaða dómsins að störf sonar Árna fyrir Kaupþing leiði til þess að draga megi í efa hlutleysi dómarans við meðferð málsins og að hann hefði af þeim sökum átt að segja sig frá því. Í yfirlýsingu Ólafs segir að með þessu hafi verið staðfest alvarleg brotalöm í meðferð málsins fyrir dómi á Íslandi, sem hófst fyrir sjö árum.

Síðan þá hafi ítrekað verið bent á vina-, hagsmuna- og venslatengsl við meðferð mála en því ávallt hafnað hvort sem það hefur verið fyrir endurupptökunefnd, héraðsdómi, landsrétti eða hæstarétti. Krafa Ólafs hafi einfaldlega verið sú að fá úrlausn sinna mála fyrir hlutlausum og óvilhöllum dómstólum til að geta leitt hið sanna í ljós um sakleysi sitt.

Með dómi Mannréttindardómstólsins í dag sé hins vegar, samkvæmt yfirlýsingu Ólafs, ljóst að Al-Thani dómurinn hafi verið kveðinn upp af vanhæfum dómstól.

Það snúi því uppá íslensk stjórnvöld að uppfylla þjóðréttalegar skuldbindingar sínar samkvæmt Mannréttindasáttmála Evrópu og beina málum af þessu tagi í viðeigandi farveg til að einstaklingar fái notið þeirra réttinda sem sáttmálinn byggir á.

Í því sambandi er jafnframt vísað í nýlega umræðu á Alþingi þar sem fram kom að það væri grundvallarhlutverk Mannréttindadómstólsins að vernda hagsmuni borgaranna gegn ágangi ríkisvaldsins og valdníðslu.

„Niðurstaða Mannréttindadómstólsins sýnir fram á að ég naut ekki réttlátrar málsmeðferðar og úrlausnar fyrir óvilhöllum dómstólum, sem er einn af hornsteinum réttarríkisins. Þetta staðfestir athugasemdir sem ég hef gert við meðferð málsins á öllum stigum þess; íslenskir dómarar hafa ekki gætt að hæfi sínu og setið í dómi þar sem vafi leikur á hlutleysi þeirra. Í viðleitni til að sanna sakleysi mitt hef ég ítrekað rekist á veggi þar sem samtvinnuð hagsmunagæsla óskilgreindra afla í dómskerfinu hefur komið í veg fyrir að hægt væri að leiða hið sanna í ljós. Fegurðin við Ísland felst meðal annars í fámenninu en við þær aðstæður verður sérstaklega að gæta að hlutleysi í viðkvæmum málum vegna náinna tengsla í litlu samfélagi. Mannréttindadómstóllinn staðfestir að það er sannarlega brot á mannréttindum þegar vanhæfur dómari situr í dómi. Þetta er fullnaðarsigur,“ segir Ólafur Ólafsson.