Mexíkóskur veitingastaður mun verða opnaður í Vesturbænum í lok sumars. Staðurinn mun vera staðsettur á Ægisíðu, í sama húsnæði og Borðið var áður í. Frá þessu er greint á Vísi .

Guðmundur Óskar Pálsson og Helgi Kristinn Halldórsson eru eigendur staðarins, sem ber nafnið Chido. Þeir félagar reka nú þegar þrjá Chido staði í Danmörku. Þeir munu þó ekki sjá um rekstur staðarins, heldur mun Vigdís Ingibjörg Pálsdóttir sjá um reksturinn, en hún er systir Guðmundar.