Orkuveita Reykjavíkur hagnaðist um 3,9 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi þessa árs samanborið við 390 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. Þetta kemur fram í nýbirtum ársreikningi fyrirtækisins.

Rekstur Orkuveitu Reykjavíkur gekk vel á fyrsta fjórðungi ársins og var niðurstaða reksturs góð sem og framlegðin. Ytri áhrifaþættir voru ýmist hagfelldir eða ekki en heildarniðurstaða reksturs samstæðu OR á tímabilinu var hagnaður sem nam 3,9 milljörðum króna. Innan samstæðunnar eru, auk móðurfélagsins, Veitur, Orka náttúrunnar og Gagnaveita Reykjavíkur. Árshlutareikningur samstæðunnar var staðfestur af stjórn OR í dag.

„Rekstur Orkuveitu Reykjavíkur gekk vel á fyrsta fjórðungi ársins og var niðurstaða reksturs góð sem og framlegðin. Ytri áhrifaþættir voru ýmist hagfelldir eða ekki en heildarniðurstaða reksturs samstæðu OR á tímabilinu var hagnaður sem nam 3,9 milljörðum króna. Innan samstæðunnar eru, auk móðurfélagsins, Veitur, Orka náttúrunnar og Gagnaveita Reykjavíkur. Árshlutareikningur samstæðunnar var staðfestur af stjórn OR í dag," segir í

„Rekstur fyrirtækjanna í OR-samstæðunni gengur prýðilega. Góð tök eru á útgjöldum sem hefur gert okkur kleift að lækka verð á hluta þjónustunnar og ávaxta það fé sem sveitarfélögin þrjú sem eiga Orkuveitu Reykjavíkur hafa bundið í þessum undirstöðurekstri. Í grunninn er starfsemi Orkuveitu Reykjavíkur umhverfisvæn; að nýta landsins gæði með ábyrgum hætti til að útvega fólki og atvinnulífi heilnæmt neysluvatn, græna orku, reka fráveitu til hreinlætis og gagnaveitu sem stenst kröfur tímans. Og þó kolefnisspor þessarar starfsemi sé með því minnsta sem sést í sambærilegum rekstri annarsstaðar vinnum við hörðum höndum að minnka það enn frekar. Á fyrsta fjórðungi ársins leitaði fyrirtækið fyrirtækið fyrir sér í fyrsta skipti með útgáfu á grænum skuldabréfum til að fjármagna að hluta þann fjölda umhverfisverkefna sem við stöndum fyrir. Áhugi á bréfunum var mikill enda höfðu þau fengið dökkgrænan stimpil í óháðu mati. Við teljum að hagstæðari kjör hafi fengist fyrir vikið og við sjáum fram á að halda slíkri útgáfu áfram," segir Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitunnar.