Pálmi V. Jónsson prófessor og yfirlæknir öldrunarlækningadeild á Landspítalanum var tekjuhæstur meðal lækna og tannlækna á landinu á síðasta ári, en tekjur hans námu 7,2 milljónum króna að jafnaði á mánuði, samkvæmt álagningarskrám ríkisskattstjóra. Þess ber að geta að stór hluti tekna Pálma á síðasta ári var einskiptisgreiðsla vegna séreignarsparnaðar hjá lífeyrissjóði.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út í síðustu viku. Í blaðinu má finna upplýsingar um tekjur ríflega 3.700 Íslendinga. Að þessu sinnir eru tveir nýir flokkar í blaðinu. Annars vegar yfir tekjur áhrifavalda á samfélagsmiðlum og hins vegar fasteignasala.

Næst launahæstur var með rétt tæplega 2 milljónum lægri tekjur á mánuði, eða 5,1 milljón króna. Það var Þorvaldur Ingvarsson bæklunarskurðlæknir og yfirmaður hjá Össuri. Þar á eftir með um hálfri milljón minna kemur Eiríkur Jónsson þvagfæraskurðlæknir og yfirlæknir á Landspítalanum, með 4,4 milljónir króna.

Fimm tekjuhæstu læknar og tannlæknar ársins 2018:

  1. Pálmi V. Jónsson, próf.öldrunarlæknir, yfirlæknir Landsp. 7,215 milljónir króna
  2. Þorvaldur Ingvarsson, bæklskurðl. yfirm. hjá Össuri 5,121 milljónir króna
  3. Eiríkur Jónsson, þvagfæraskurðlæknir, yfirlæknir 4,437 milljónir króna
  4. Vilhjálmur Ari Arason, læknir bráðamóttöku LSH. 4,298 milljónir króna
  5. Sigfús Þór Nikulásson, meinafr. lektor HÍ 3,936 milljónir króna

Útreikningar Frjálsrar verslunar byggja á útsvarsskyldum tekjur á árinu 2018 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna starfa á fyrri ára. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði.

Tekjublað Frjálsrar verslunar er komið út. Finna má blaðið á helstu sölustöðum en einnig má panta eintak hér .