Skúli Skúlason stjórnarformaður Play segir markaðinn fyrir flugvélar vera gjörbreyttan og einstaklega hagstæður fyrir nýtt félag.

„Ef Covid þróast í jákvæða átt þá erum við að horfa á að byrja áætlunarflug okkar í október. Það fer mikill tími í viðræður við flugvélaleigusala, hvaða kjör og hvers konar vélar eru í boði og hvernig þær passa inn í samsetningu á framtíðarflotanum. Enn er alveg óljóst og fer eftir því hvernig staðan verður, hvort við byrjum með eina eða fleiri vélar, enda erfitt að taka ákvarðanir með alla þessa óvissuþætti fyrir framan sig,“ segir Skúli.

„Það liggur ekkert á þegar verið er að fara af stað með flug yfir vetrarmánuðina þegar fjöldi ferðamanna er minni. Það kostar mikið að vaxa ef þú gerir það of hratt, en ég held að við værum ekki að flýta okkur of hratt ef við værum komnir með sex til átta vélar með vorinu, jafnvel fleiri. Hafa verður í huga að Play er þannig séð ekki frumkvöðlafyrirtæki heldur erum við að endurnýja aðgang að mjög vel þjálfuðu starfsfólki þannig að allir innviðir og kerfi eru klár, flugið sjálft er bara framkvæmd í restina.“

Skúli segir hægt að segja Play vera á góðum stað miðað við keppinautana sem sitja uppi með flugvélar sem ekki er hægt að nota sem og fjölda starfsfólks á launum.

„Við erum í dag með 36 starfsmenn, en hluti af starfsfólkinu hefur ekki verið í fullri vinnu meðan á kórónuveirufaraldrinum stóð og því starfsemin ekki verið 100%, eða í yfirgír eins og þegar starfsemin verður komin á fullan skrið. Við erum að brenna á bilinu 200 til 300 þúsund evrum á mánuði í reksturinn núna, sem við getum staðið vel undir þangað til við sjáum tekjustreymi byrja vonandi strax í haust. Við erum með aðgang að nægri fjármögnun til að fara í loftið,“ segir Skúli sem segir Play vera með allan undirbúning tilbúinn fyrir lokafrágang á leigu á flugvélum.

„Flugrekstur er gríðarlega umfangsmikill og mikið reglugerðarumhverfi og margt sem þarf því að huga að, og til þess þarf þennan mannskap. Flugrekstrarleyfið er klárt, bókunarsíðan er tilbúin, sem og samningar komnir við þjónustuaðila, birgja sem og kjarasamningar. Það eina sem er í raun eftir núna er að átta sig á hvenær Covid endar og hvernig við klárum restina.

Það versta í þessu er óvissan með faraldurinn og hvenær ferðamennskan hefst á ný. Það er verið að tala um að opna Evrópu 15. júní næstkomandi, en svo kemur í ljós að hún er í raun ekkert að opnast, það eru svo miklar takmarkanir víða. Þegar lesið er um takmarkanirnar í hverju landi fyrir sig sér maður að þetta er að fara að hafa áhrif á ákvarðanir fólks um að ferðast, Bretar eru til dæmis að setja tveggja vikna sóttkví meðan við erum að opna fyrir skimun hér á Íslandi.“

Nánar má lesa um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir Tölublöð , aðrir geta gerst áskrifendur hér .