Óprúttnir aðilar eru að senda tölvupósta í nafni Póstsins í þeim tilgangi að komast yfir kortaupplýsingar fólks að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Íslandspósti. Jafnframt virðist bera á því að fólk sé að fá sms í nafni Póstsins og Skattsins af sama meiði.

Pósturinn varar eindregið við því að smella á hlekki sem fylgja þessum póstum og undir engum kringumstæðum ætti að gefa upp kortaupplýsingar eða aðrar persónulegar upplýsingar. Hins vegar geti þeir viðskiptavinir sem eiga von á sendingum eftir sem áður fylgst með ferðum þeirra á heimasíðu Póstsins, posturinn.is.

„Við viljum að það sé alveg skýrt að þessir póstar koma ekki frá okkur, það er mjög leiðinlegt að horfa upp á óprúttna aðila nota nafn Póstsins til að svíkja fólk,” segir Sesselía Birgisdóttir, framkvæmdastjóri þjónustu- og markaðssviðs Íslandspósts.

„Við hvetjum alla til að huga vel að því hvort þeir eigi von á sendingum og minnum á að ef greiða á af sendingu á netinu hjá okkur þarf alltaf að skrá sig inn á örugga síðu á minnpostur.is.“