Prentmet Oddi ehf. hefur tekið við framleiðslu á stimplum Stimplagerðarinnar. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu, en í mars á þessu ári sagði Viðskiptablaðið frá því að Stimplagerðin hafi verið auglýst til sölu .

Stimplagerðin hefur verið í rekstri síðan 1955, er elsta stimplagerð landsins. Hjónin Óðinn Geirsson og Aðalheiður Maack keyptu fyrirtækið árið 1976 af stofnandanum, Bergi Thorberg prentara, og hafa því rekið það í um 45 ár.

Í samtali við Viðskiptablaðið sagði Óðinn frá því að fyrirtækið hafi verið sett á sölu þar sem þau hjónin hyggist setjast í helgan stein og njóta efri áranna.

Prentmet Odda er í fréttatilkynningunni lýst með eftirfarandi hætti:

„Prentmet og nú Prentmet Oddi var stofnað árið 1992 og rekið af þeim hjónum Guðmundi Ragnari Guðmundssyni og Ingibjörgu Steinunni Ingjaldsdóttir með hraða, gæði og persónulega þjónustu að leiðarljósi.  Fyrirtækið býður upp á heildarlausnir í prentun. Prentar umbúðir, bækur, allt almennt prentverk, límmiða og gerir stimpla.“