Útgáfufélagið Pressan tók formlega við eignarhaldi á Birtíngi útgáfufélagi í dag. Á hluthafafundi var ný stjórn Birtíngs kjörin og í henni sitja Björn Ingi Hrafnsson  stjórnarformaður, Matthías Björnsson og Sigurvin Ólafsson. Karl Steinar Óskarsson verður áfram framkvæmdastjóri Birtíngs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Pressunni.

Þar segir að á fundi með starfsmönnum Birtíngs kynntu forsvarsmenn Pressunar sýn sína á möguleika tímarita Birtíngs og þar kom fram að miklir möguleikar felist í sókn með nýrri tækni á netinu og á samskiptamiðlum, auk hefðbundinnar útgáfu tímaritanna.

„Fram kom í máli Björns Inga Hrafnssonar, nýs útgefanda Birtíngs, að gert er ráð fyrir að Séð og heyrt og Nýtt líf hefji fljótlega göngu sína að nýju, en bæði tímaritin hafa verið í útgáfuhléi frá áramótum. Á næstunni verði kynntar margvíslegar aðgerðir til að sækja fram í útgáfu á vegum samstæðunnar, en Pressan og einstök dótturfélög hennar gefa nú út tæplega þrjátíu fjölmiðla hér á landi.

Pressan er nú eigandi alls hlutafjár í Birtíngi, en fyrrverandi hluthafar í félaginu, þeir Hreinn Loftsson, Matthías Björnsson og Karl Steinar Óskarsson, bætast í hluthafahóp Pressunnar. Framkvæmdastjóri Pressunnar er Arnar Ægisson,“ segir einnig í tilkynningunni.