Ragnheiður Ríkharðsdóttir, fyrrverandi þingmaður og þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, hefur verið kjörin í stjórn Ríkisútvarpsins. Kosið er í stjórnina á ársfresti. Hún er einn af níu aðalmönnum í stjórn fjölmiðilsins.

Aðalmenn í stjórn RÚV eru: Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Brynjólfur Stefánsson, Jón Jónsson, Kristín María Birgisdóttir, Friðrik Rafnsson, Jón Ólafsson, Lára Hanna Einarsdóttir, Stefán Vagn Stefánsson og Mörður Árnason.