Nasdaq (NASDAQ:NDAQ) tilkynnti í dag niðurstöður endurskoðunar á OMX Iceland 8 vísitölunni (Nasdaq Iceland: OMXI8), sem gerð er tvisvar á ári. Endurskoðuð samsetning tekur gildi 2. janúar 2019. Reginn fasteignafélag hf. (REGINN) kemur nýtt inn í vísitöluna í staðinn fyrir Skeljung hf. (SKEL). Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Nasdaq Nordic.
Samsetning OMXI8 vísitölunnar frá og með 2. janúar 2019 verður því eftirfarandi:
Eik fasteignafélag hf. (EIK)
Festi hf. (FESTI)
Hagar hf. (HAGA)
Icelandair Group hf. (ICEAIR)
Marel hf. (MARL)
Reginn hf. (REGINN)
Reitir fasteignafélag hf. (REITIR)
Síminn hf. (SIMINN)
OMX Iceland 8 vísitalan er Úrvalsvísitala Nasdaq Iceland og er samsett af þeim átta félögum sem hafa mestan seljanleika á Nasdaq Iceland. Vægi félaga í OMX Iceland 8 vísitölunni ræðst af flotleiðréttu markaðsvirði, sem þýðir að einungis það hlutafé sem ætla má að myndi grunn að virkum viðskiptum á Nasdaq Iceland er hluti af vísitölunni.