Ríkissjóður keypti í vikunni eigin skuldabréf af Seðlabanka Íslands fyrir 27 milljarða króna. Um er að ræða bréf í flokknum RIKH 18 fyrir um 4,7 milljarða króna að nafnvirði og í flokknum RIKB 19 fyrir um 21,6 milljarða króna að nafnvirði. Uppgjör viðskipta fór fram í dag að því er kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

Heildarkaupverð bréfanna nemur 27,3 milljörðum króna. Kaupin voru fjármögnuð með innstæðum ríkissjóðs hjá Seðlabanka Íslands og með lækkun á almennri sjóðsstöðu.

Eftir þessi viðskipti nema heildarskuldir ríkissjóðs um 866 milljörðum króna, eða sem samsvarar 32% af VLF, og er þá tekið tillit til útboðs á ríkisbréfum sem fram fór í dag. Hrein staða ríkissjóðs reiknuð á grundvelli laga um opinber fjármál, þ.e. þegar sjóðir og innstæður eru dregnar frá heildarskuldum, nemur eftir viðskiptin um 724 milljörðum króna, eða sem nemur um 27% af VLF.