Íslenska ríkið og flugvélaleigan ALC voru voru í dag dæmd til að greiða Isavia rúma 2,5 milljarða króna vegna „saknæmrar háttsemi“ héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjaness. Málið snýr að deilum um kyrrsetningu Isavia á Airbus-þotu gegn skuldum flugfélagsins WOW air. Líklegt þykir að málinu verði áfrýjað til Landsréttar, að því er kemur fram í frétt RÚV .

Isavia kyrrsetti vélina í við gjaldþrot WOW í mars 2019 og heimtaði að ALC myndi greiða allar skuldir WOW sem námu um tveimur milljörðum króna. ALC taldi sig ekki bera ábyrgð fyrir öllum skuldum WOW og krafðist þess að fá þotuna afhenta. Deilan fór fyrir héraðsdóm, Landsrétt og Hæstarétt.

Flugvélaleigan varð að ósk sinni í júlí 2019 eftir að dómari við Héraðsdóm Reykjaness komst að þeirri niðurstöðu að ALC ætti að fá þotuna afhenta eftir að hafa greitt allar skuldir sem hvíldu á vélinni sjálfri. Þar að auki sá hann ekki ástæðu til að fresta réttaráhrifum úrskurðarins og var þotunni flogið úr landi síðar í mánuðinum.

Isavia leit svo á að með þessu hefði umræddur dómar svipt sig tryggingu fyrir tveggja milljarða skuld og höfðaði því skaðabótamál á hendur íslenska ríkinu og flugvélaleigunni ALC.

Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu í dag að dómurinn hafi verið rangur og að meðal annars hafi verið litið fram hjá rökstuðningi í úrskurði Landsréttar í sama máli og haldið sig við túlkun á ákvæði sem fór í berhögg við túlkun Landsréttar. Þá háttsemi verði að meta dómaranum til sakar. Dómarinn hafi komist að rangri niðurstöðu og sýnt af sér saknæma háttsemi þegar hann féllst ekki á kröfu um að málskot myndi fresta aðfarargerð á grundvelli úrskurðarins.

Dómurinn, sem kveðinn var í dag, telur að Isavia hafi með þessu orðið fyrir tjóni og var íslenska ríkinu og ALC  dæmt að greiða Isavia um 2,5 milljarða. Allur málskostnaður, 15 milljónir, þarf að greiðast úr ríkissjóði.