Íslenska ríkið hefur selt Lyfju til félagsins SID ehf, sem er í eigu SIA III, sjóðs í rekstri Stefnis, dótturfélags Arion banka, og er að stærstum hluta í eigu lífeyrissjóða, Þarabakka ehf., undir stjórn Daníels Helgasonar fjárfestis, og Kasks ehf. sem er stýrt af Inga Guðjónssyni, eins stofnenda og fyrrverandi forstjóra Lyfju.

Hagar hugðust kaupa Lyfju af íslenska ríkinu árið 2016 en Samkeppniseftirlitið heimilaði ekki kaupin.

Félagið Lindarhvoll, sem sá um ráðstöfun stöðugleikaeigna sem ríkinu féll í skaut við uppgjör slitabúa föllnu bankanna sá um söluna fyrir hönd ríkissjóðs og var Kvika banki ráðgjafi Lindarhvols við söluna.

„Með sölunni á Lyfju hf. í opnu söluferli er ráðstöfun stöðugleikaeigna í umsýslu Lindarhvols lokið. Félagið hefur með sölunni komið langstærstum hluta þeirra eigna sem því var falin umsýsla með í laust fé,“ segir í tilkynningu frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu.

„Samkomulag er um það milli stjórnar Lindarhvols og fjármála- og efnahagsráðuneytisins að fella við svo búið niður samning sem ráðuneytið gerði við félagið í apríl 2016 um úrvinnslu og umsýslu stöðugleikaeigna frá og með 7. febrúar. Í kjölfarið verður Lindarhvoli ehf. slitið,“ segir jafnframt í tilkynningunni.

Stærstu óinnheimtu eignir sem Lindarhvoli var falið að annast eru kröfur í þrotabú og önnur innheimtumál, lánasamninga, fjársópseignir og skuldabréf Kaupþings, auk afkomuskiptasamnings sem tengist sölu á Arion banka.

„Umsýslu og eftirliti með umræddum eignum verður áfram sinnt í umboði ríkissjóðs og mun andvirði þeirra skila sér inn á stöðugleikareikning ríkissjóðs við fullnustu. Til viðbótar eru nokkrar óverulegar stöður í óskráðum hlutabréfum og verður umsýslu þeirra komið fyrir í höndum viðeigandi ríkisaðila,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.

Andvirði þeirra stöðugleikaeigna sem búið er að innleysa nemur alls um 207,5 milljörðum króna, en þá eru frátalin framlög vegna viðskiptabanka og aðrar óinnleystar eignir. „Þessari fjárhæð hefur lögum samkvæmt verið ráðstafað inn á stöðugleikareikning í eigu ríkissjóðs í Seðlabanka Íslands og þær nýttar til að greiða niður útistandandi skuldir ríkissjóðs, til að mæta tekjutapi vegna sérstaks skatts á fjármálafyrirtæki og til að fjármagna lífeyrisskuldbindingar,“ segir í tilkynningu.