Samkvæmt talningum Ferðamálastofu og Isavia í Flugstöð Leifs Eiríkssonar voru brottfarir erlendra farþega frá Íslandi rúmlega 278.600 í júlí sem er 2,5% fjölgun miðað við júlí í fyrra.

Fjölgunin í júlí byggir að mestu leyti á Bandaríkjamönnum sem hafa aukið hlutdeild sína til muna. Rúmlega 27% fleiri Bandaríkjamenn fóru frá Leifsstöð í júlí í ár en á sama tíma í fyrra. Norðurlandabúum, Bretum, Frökkum, Þjóðverjum og Kanadamönnum, sem einnig tilheyra mikilvægum markaðssvæðum fyrir Ísland, fækkaði hins vegar um 9-19% í júlí á milli ára. Ef fjöldi Bandaríkjamanna hefði staðið í stað milli ára hefði brottfararfarþegum í júlí fækkað um 5,6%.

Frá áramótum hafa rúmlega 1300 þúsund erlendir farþegar farið frá Íslandi um Leifsstöð sem er tæplega 5% fjölgun miðað við sama tímabil í fyrra.

Rúmlega 66 þúsund Íslendingar fóru utan í júlí í ár eða 6% fleiri en í júlí 2017. Samtals voru brottfarir Íslendinga á tímabilinu janúar til júlí rúmlega 389 þúsund talsins eða 10,7% fleiri en á sama tímabili árið 2017.

Í júlí voru erlendir brottfararfarþegar í Leifsstöð 278.613 og hafa aldrei verið fleiri í júlímánuði. Bandaríkjamenn eru fjölmennastir þjóðerna í júlí með tæplega 103 þúsund farþega eða 36,9% af heild. Þar á eftir koma Þjóðverjar, Bretar, Frakkar og Kanadamenn með 4,5-7,4% hlutdeild.

Fjölgun farþega í júlí var tæplega 6700 á milli ára eða 2,5% sem er óveruleg fjölgun miðað við fyrri ár. Bandaríkjamönnum fjölgaði um rúmlega 27% í mánuðinum á milli ára á meðan farþegum frá flestum öðrum ríkjum fækkaði verulega. Sem dæmi fækkaði Þjóðverjum um 19,6% í júlí, Frökkum um 16,7%, Bretum um 13,3% og Kanadamönnum um 9,1% miðað við júlí í fyrra. Hefði fjöldi Bandaríkjamanna staðið í stað frá því í júlí í fyrra hefði brottfararfarþegum júlímánaðar fækkað um 5,6% á milli ára.

Athygli vekur að raunfjöldi brottfararfarþega í júlí er nokkru meiri en uppfærð spá ISAVIA fyrir ferðasumarið 2018 sem kynnt var í 30. maí sl. Þar var áætlað að fjöldi erlendra brottfararfarþega yrði tæplega 242 þúsund í júlí eða 36 þúsundum færri en fóru frá landi. Sömu sögu er að segja í júní en þá fóru rúmlega 19 þúsund fleiri farþegar frá Íslandi en gert var ráð fyrir í spá ISAVIA.

Frá áramótum 2018 hafa rúmlega 1300 þúsund erlendir farþegar farið frá Íslandi um Leifsstöð sem er tæplega 5% fjölgun miðað við sama tímabil í fyrra. Markaðshlutdeild Norður-Ameríku (Bandaríkja og Kanada) vegur mest með 34% af heild.

Frá Mið- og Suður-Evrópu og Bretlandseyjum koma 19% og 15% farþega. Norðurlandabúar og Asíubúar voru heldur færri, með 8% hlutdeild hvorir um sig og Austur-Evrópubúar voru 6% brottfararfarþega.

Athyglisvert er að skoða hvernig farþegafjöldinn hefur þróast eftir markaðssvæðum á þessu tímabili (janúar-júlí) síðustu ár. Þegar nokkur ár eru skoðuð aftur í tímann sést vel að mikil aukning hefur einkennt þróunina, sér í lagi í N-Ameríku. Frá 2017 hefur dregið verulega úr fjölgun farþega á milli ára.

Enn fjölgar örlítið á öllum markaðssvæðum nema á Norðurlöndum þar sem farþegum fækkar um 8% frá því á sama tímabili í fyrra.