MMR endurtók á dögunum mælinguna frá 2018 og í ljós kom að nokkuð færri Íslendingar eru með virkt Costco aðildarkort nú heldur en við síðustu mælingu. Er nú rúmlega helmingur Íslendinga með virkt aðildarkort í Costco eða 53% samanborið við 71% landsmanna í upphafi árs 2018. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu.

„Á sama tíma og þeim hefur fækkað sem eru með virkt Costco aðildarkort hefur hlutfalli þeirra sem hyggjast endurnýja kortið aukist. Hyggjast nú 78% þeirra sem hafa virkt aðildarkort endurnýja kortið þegar þar að kemur samanborið við 60% í janúar 2018," segir í tilkynningunni.

Höfuðborgarbúar líklegri til að vera með aðildarkort

„Fólk á aldrinum 30-49 ára (62%) og 50-67 ára (60%) reyndist líklegra en fólk í öðrum aldurshópum til að hafa virkt Costco aðildarkort. Þá reyndist fólk á aldrinum 50-67 ívið líklegra en aðrir til að ætla að endurnýja Costco aðild sína eða 85%.
Höfuðborgarbúar (58%) reyndust líklegri til að vera með Costco aðildarkort heldur en íbúar landsbyggðarinnar (42%) en hlutfall þeirra sem hugðust endurnýja aðildina var nokkuð jafnt eða tæp 80% bæði hjá höfuðborgarbúum og íbúum landsbyggðarinnar."

72% miðflokksmanna með aðildarkort

Stuðningsfólk Miðflokksins reyndist hvað líklegast til að vera með Costco aðildarkort eða 72%. Um helmingur stuðningsfólks Viðreisnar, Pírata og Samfylkingar voru með virkt aðildarkort en einungis 34% stuðningsfólks Vinstri grænna. Stuðningsfólk Miðflokksins reyndist jafnframt líklegast til að ætla að endurnýja Costco aðild sína eða 91%.